Skip to content Skip to footer

Paul Bara Grand Cru Extra Brut

8.700 kr.

Grand Cru kampavín frá Paul Bara sem er gert úr þrúgunum Chardonnay (20%) og Pinot Noir (80%).  Vínviðurinn er um 50 ára gamall sem er kjöraldur fyrir góðan vínvið. Stærstur hluti þrúganna er árgangur 2018 en örlitlu varavíni var bætt út í. Vínið er látið hvíla í 5 ár í kjallara Bara-fjölskyldunnar áður botnfallið var skilið frá í júlí 2024 og korktappinn settur í.

Categories: , Product ID: 19660

Description

Bara-fjölskyldan hefur stundað vínrækt í Bouzy-héraði í tæp 200 ár. Paul Bara, sem víngerðin er kennd við, var fimmti ættliður Bara-fjölskyldunnar sem stundaði vínræktina en sá fyrsti sem fór að gera vín undir merkjum fjölskyldunnar.  Hann lét breyta fjósi og hlöðu í víngerðarhús, og gróf einnig út kjallara þar sem vínin eru nú geymd og látin þroskast.  Paul Bara var á meðal fyrstu „smáframleiðenda“ í Champagne sem hófu að flytja vín sín út fyrir Frakkland og í dag eru vín Paul Bara seld um allan heim.  Í dag er það dóttir Paul, Chantale Bara sem heldur um stjórnartaumana ásamt Stéphanie dóttur sinni.

Vínekrur Paul Bara ná yfir um 11 hektara lands – allt  Grand Cru-vínekrur – 9,5 hektarar af Pinot Noir og 1,5 hektari af Chardonnay.  Allt víngerðarferlið miðast við sjálfbærni og umhverfisvernd – engin skordýraeitur koma nálægt vínekrunum og súlfíðnotkun er haldið í lágmarki.  Öll kampavín Paul Bara er látin hvíla í minnst 5-6 ár áður en þau fara á markað.

Þetta Grand Cru kampavín frá Paul Bara er gert úr þrúgunum Chardonnay (20%) og Pinot Noir (80%).  Vínviðurinn er um 50 ára gamall sem er kjöraldur fyrir góðan vínvið. Stærstur hluti þrúganna er árgangur 2018 en örlitlu varavíni var bætt út í. Vínið er látið hvíla í 5 ár í kjallara Bara-fjölskyldunnar áður botnfallið var skilið frá í júlí 2024 og korktappinn settur í.

Þremur grömmum af sykri var bætt í vínið og það er því Extra-Brut.

Líkt og önnur kampavín er þetta ákaflega gott eitt og sér en við mælum með að þið prófið það með grilluðum risarækjum.