Skip to content Skip to footer

Mulette-Corbon Millésime Brut 2019

8.500 kr.

Vínið er gert úr þrúgunum Meunier (50%) og Chardonnay (50%). Að lokinni seinni gerjun fékk vínið að hvíla í 36 mánuði áður en botnfallið var skilið frá og korktappinn settur í. Þá fékk það aðra 6 mánuði í hvíld áður en fyrstu flöskurnar fóru úr kjallaranum.

Sykurmagnið í víninu er 6 g/L og vínið er því Brut.

Out of stock

Categories: , Brand: Product ID: 19665

Description

Áin Marne á upptök sín í austurhluta Frakklands. Hún liðast um fallegar sveitir Marne-dalsins áður en hún rennur að lokum saman við ána Signu á leið til sjávar. Marne-dalurinn á sér blóðuga sögu, því þarna féll um hálf milljón ungra manna í mikilli orrustu í september 1914 við upphaf fyrri heimsstyrjaldarinnar. Marne-dalurinn er líka stærsta vínræktarhéraðið í Champagne og þarna er þrúgan Meunier ráðandi ávínekrunum.

Þrúgan Meunier hefur lengst af staðið í skugga Chardonnay og Pinot Noir. Meunier þýðir smiður, og það nafn er vel við hæfi því Meunier gefur ungum kampavínum meiri fyllingu og “byggir þau upp”.

Við þorpið Cerseuil rækta systurnar Elodie og Geraldine Mulette vínvið á rúmum 6 hektörum – að mestu leyti Meunier en einnig Chardonnay. Helming uppskerunnar selja þær til vínhúss Pol Roger. Úr hinum helmingnum gera þær kampavín undir merkjum Mulette-Corbon sem foreldrar þeirra stofnuðu árið 1992. Flest vínin eru blöndur Meunier og Chardonnay, en þær gera líka hreint Meunier- kampavín.

Lúxusvín aprílmánaðar er Mulette-Corbon Brut Millesime 2019. Vínið er gert úr þrúgunum Meunier (50%) og Chardonnay (50%). Að lokinni seinni gerjun fékk vínið að hvíla í 36 mánuði áður en botnfallið var skilið frá og korktappinn settur í. Þá fékk það aðra 6 mánuði í hvíld áður en fyrstu flöskurnar fóru úr kjallaranum.

Sykurmagnið í víninu er 6 g/L og vínið er því Brut.